|
|
20.09.2007 20:13:48 / oddrunin
Í bili allavega. Fór í fýlu út í blog.central og færði mig yfir á moggabloggið. Kíkið í heimsókn. Veit ekkert hvort það endist en ætla að prufa. Slóðin er http://oddrunin.blog.is/blog/oddrunin Bleble, Oddrúnin.
»
31.08.2007 00:36:18 / oddrunin
Ég er að fara til tannlæknis í fyrramálið... Ég braut tönn fyrir jól,,, já fyrir jól,,, og hef ekki gefið mér tíma til að fara til tannlæknis  Nú er ég komin með tannpínu  Ég kvíði mikið fyrir þessu og er búin að hjakka á milli tannanna með tannþræði í allan dag,,, er orðin pínu aum í gómnum  Ætli ég sofi nokkuð  ,,,,,,,,, Farin að bursta,,, aftur  bleble.....
»
15.08.2007 11:06:10 / oddrunin
Það er svo gaman hjá mér að lesa að ég gef mér lítinn tíma í
annað. Kláraði þriðja táknið um síðustu helgi og var að byrja á
DaVinci lyklinum. Ég held að ég verði aðeins lengur með hana,,, en
það er nú samt ekkert víst. Ég er frekar fljót að lesa. Ég mæli með
þessu, þetta er svo miklu skemmtilegra en að horfa á
sjónvarpið.
Ólöf er líka búin að vera dugleg að lesa. Hún er að lesa
Spiderwick bækurnar og sekkur alveg í þær. 
Gaman hjá okkur 

Bleble, Oddrúnin
»
09.08.2007 22:51:10 / oddrunin

Er helvíti flottur og mig langar á tónleikana...
Er ekki búin að kaupa miða 
Var að kaupa miða 
Verð á B svæði á föstudeginum... úje 
»
07.08.2007 12:39:49 / oddrunin
Jámm, er að lesa þessa dagana. Er nánast hætt að horfa á
sjónvarpið af einhverjum óskiljanlegum ástæðum. Núna er ég komin í
bólið um 22:00 á kvöldin alveg æst að byrja að lesa 
Var að klára Ólöfu eskimóa. Þar áður las ég eftirmála eftir
Njörð p. Njarðvík. Hafði lesið bókina ekkert mál þegar ég var
unglingur og fannst því skylda mín að lesa eftirmálann. Þetta er
rosaleg bók og ég var hálf dofin eftir að ég var búin að lesa hana.
Hún er samt fljótlesin og var ég ekki nema einn dag með hana, uppi
í sumarbústað.
Núna er ég að lesa þriðja táknið og hún lofar góðu.
Þangað til næst...
»
01.08.2007 09:58:37 / oddrunin
Mér finnst þær ferlega góðar. Einhverra hluta vegna borða ég
samt alltaf súkkulaðið utan af þeim og hendi rúsínunni 
Mér finnst jólakökur líka góðar,,, þegar ég er búin að pilla
rúsínurnar úr 
Grjónagautur finnst mér æði,,, með rúsínum. Þá pilla ég þær ekki
úr 
Ég er kannski pínu spes... en það er allt í lagi.
Kveðja, Oddrún rúsína.
»
18.07.2007 18:41:00 / oddrunin
Fór til Röggu súðustu helgi og hún bauð upp á Sushi. Næsta skref
er að útvega sér svona græjum og fara að búa mér til sjálf. Mikið
assgoti var þetta gott. Algjört nammi Takk fyrir mig.
Skemmtum okkur vel við góða tónlist og svo kíktu Ingvar og Nansý á
okkur seinna um kvöldið.
Fyrir einhverju síðan setti ég inn svona lista yfir 25 mest
spiluðu lögin á i-tunes hjá mér. Listinn kom mér frekar mikið á
óvart, en nú ætla ég að setja aftur inn lista, topp 25, staðan í
dag. Ætti að vera skemmtilegt 
- Wishmaster – Nightwish
- Deep silent complete –
Nightwish
- Over the hills and far away –
Nightwish
- Walking in the air –
Nightwish
- The kinslayer – Nightwish
- Alive – Pearl Jam
- Deus – Sugarcubes
- Sacrament of wilderness -
Nightwish
- Black – Pearl Jam
- Even Flow – Pearl Jam
- The Rose – Bette Midler
- Oh to be in love – Kate
Bush
- December will be magic again – Kate
Bush
- Why go – Pearl Jam
- Wasted time – Skid Row
- Summer’s almost gone – Spilverk
þjóðanna
- Never say goodbye – Bon
Jovi
- Wuthering Heights – Kate
Bush
- It’s only a paper moon – Ella
Fitzgerald
- Isolation – John Lennon
- Carmen – Maria Callas
- Fade to black – Metallica
- Holy Mountains – System Of A
Down
- Urge for going – Joni
Mitchell
- Velkomin - Kabarett
Tek eftir því þegar ég skoða þennan lista að hún Ólöf mín á
heiðurinn af flestum lögunum á þessum lista. Hún á allavega allan
Nightwish, Mariu Callas, System of a down og Kabarett. Næst tek ég
listann úr heimilistölvunni, það ætti að vera mest frá mér. Þessi
listi virðist allavega ekki gefa mynd af því sem ég er að hlusta
mest á 
Jæja, nenni ekki meiru. Er að spá í að fara annaðhvort í bíó eða
leigja mér mynd. Ég er í fríi á morgun og ætla að njóta þess í
botn. Vei gaman...
Bleble í bili, Oddrúnin.
»
29.06.2007 10:23:23 / oddrunin
Verð að vinna í allt sumar, reyndar í fríi í 2 vikur en er búin
að pota mér á aukavaktir seinni vikuna svo mér leiðist ekki,,,
reyndar vegna þess að ég hef ekkert efni á því að fara í frí svo
mig vantar peninginn 
Annars er ég mjög svo ánægð með þetta sumar, eða það sem komið
er, þvílíka dásamlega blíðan. Alveg að fíla þetta.
Hef svosem ekkert að segja, fannst ég bara verða að tjá mig
eitthvað hérna.
Bleble, Oddrúnin 
»
18.06.2007 22:52:50 / oddrunin
Ég útskrifaðist sem þroskaþjálfi síðastliðinn laugardag. Þetta
var frábær dagur í alla staði. Athöfnin sjálf ekki eins löng og ég
héllt að hún yrði og frábær tilfinning að fara þarna upp á sviðið
og taka á móti skírteininu mínu. Líka alveg frábært að horfa yfir
hópinn og sjá allar þessar frábæru stelpur sem eru búnar að ganga í
gegnum þessi yndislegu þrjú ár með mér í skólanum fá sín skírteinu.
Þetta eru svo frábærar stelpur og ég á eftir að sakna þeirra mikið.
Hjartanlega til hamingju Lilja með verðlaunin, þú áttir þau
skilið.
Þegar heim var komið lagði ég svo lokahönd á veislu
undirbúninginn og svo fór allt að fyllast af fólki. Frábær dagur en
fólk hefði mátt borða og drekka meira,,, díses hvað það var mikið
eftir af veitingum 
Um kvöldið kom svo yngri kynslóðin og skemmti sér
Ég var reyndar orðin verulega þreytt en ég
skemmti mér samt rosa vel, sleppti því bara að djamma 
En allavega,,, takk kærlega fyrir mig allir saman. Þessi dagur
var dásamlegur í alla staði.
Bleble, Oddrún þroskaþjálfi
»
31.05.2007 20:58:04 / oddrunin
Búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin, búin,
búin, búin, búin, búin, búin.............
Fékk tvær áttur og eitt staðið. Hamingja og gleði, gleði og
hamingja, hamingja og gleði, gleði og hamingja ..... búbbúrú....
               
Takk fyrir takk, skíttíðig bless... búin með skólann, sátt og
sæl... og allt það...
Yfir og út, Oddrúnin,,,,,, aaaaaaalveg bara bráðum orðin
þroskaþjálfi og BÚINBÚINBÚINBÚIN í skólanum
»
16.05.2007 10:25:52 / oddrunin
Vúhú,,, I'm on fire. Keypti bón í gær og er að nota það í dag.
Þetta er ótrúlega skemmtilegt. Tónlistin í botn og moppan þeysist
fram og aftur... oftast á undan mér 
Svo er lokahófið í kvöld og ég kveð bekkinn minn
Langar ekki að kveðja þær. Gæti alveg hugsað mér
að vera í skólanum eitt ár í viðbót. En það verðuR gaman í kvöld og
Oddrúnin ætlar ekki að hemja sig. Nú verður fagnað ærlega.
Jiiiii hvað ég hlakka til 
Bleble í bili, farin að bóna eitthvað meira
»
13.05.2007 23:26:06 / oddrunin
Vinstri grænir, að sjálfsögðu. Óumdeilanlega sigurvegararnir

Sjálfstæðismenn eru að vísu líka sigurvegarar, en sigur vinstri
grænna er tvímælalaust sætari. Ríkisstjórnin að vísu ekki fallin,
en ég ætla ekki að láta það skemma fyrir mér að svo stöddu. Læt
næstu daga ráða því hvort þetta verði skemmilagt fyrir mér.
Núverandi stjórn má ekki halda velli.
Landsmenn sýndu það svo sannarlega að þeir treysta ekki Framsókn
og það væri tóm vitleysa hjá þeim að túlka niðurstöður kosninganna
á annan hátt. Nú er komið að þeim að taka hatt sinn og kveðja

Bleble, Oddrún,,, væn og sæl, vinstri græn 
»
28.04.2007 14:03:01 / oddrunin
Já dúllurnar mínar. Stórum áfanga í mínu lífi er lokið. Ekki sá
stærsti á árinu samt, en stór var hann þó.
Þetta ár er nefnilega uppfullt af stórum áföngum hjá mér. Í gær
flutti ég kynningu á lokaverkefninu mínu í Skriðu, sem er
fyrirlestrarsalur í skólanum. Mæting var þokkaleg og ég var
sérstaklega ánægð að sjá hvað það voru margir sem ég þekkti þarna.
Þessvegna vil ég endilega halda því fram að fólk hafi verið að koma
til þess að sjá mig  Má það alveg sko 
Eins og ég var búin að vera kvíðin yfir þessu, þá gekk svo vel
hjá mér að ég er að rifna úr monti núna. Það gekk vel hjá okkur
öllum og ég er ótrúlega stollt að tilheyra þessum góða hópi fólks.
Við erum æði 
Annar stór áfangi hjá mér verður þegar ég skila lokaritgerðinni
minni til B.A. gráðu. Það er í næstu viku sem ég geri það.
Enn annar stór áfangi verður 16. júní þegar ég útskrifast sem
þroskaþjálfi. Það verður GÓÐUR dagur.
Oddrún er ekki búin enn og nefnir annan stóran dag. 21. maí
byrja ég í nýrri vinnu. Það er nú aldeilis stór áfangi líka.
Og fyrst ég er að tala um stóra áfanga í lífinu,,, sem virðast
hellast yfir mig á eina og sama árinu,,,
þá verð ég þrítug á morgun  
Læt þetta duga í bili. Hlakka til að takast á við nýtt og betra
líf, síung, í þrítugum líkama 
Bleble, Oddrúnin, að verða þrítug 
»
23.04.2007 00:00:01 / oddrunin
Ég hélt ég myndi „kúka" í mig úr hlátri........
Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í
klóinu þegar þú kíkir.
Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er
ekkert á skeinipappírnum.
Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa
leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.
Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo
mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.
Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta
án þess að búta hann í sundur með blýanti.
Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í
kallfæri flissa.
Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru
bremsuförin í skálinni.
Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.
Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en
situr bara á dollunni og fretar.
Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur
að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.
Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo
miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af
klósettvatni.
Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og
rassgatið á þér með.
Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.
Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst
að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.
Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú
sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.
Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður
enn í marga klukkutíma á eftir.
Skopparakúku: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um
alla skálina (kostur þarf lítið að skeina)
Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt
pínulítið lambasparð.
Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir
leikfimina.
Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa -
kúka - klippa...
»
15.04.2007 19:49:41 / oddrunin
...þá dettur mar
oft niður á sniðuga og skemmtilega hluti á netinu. Vildi
deila einu með ykkur 
Nokkrir gullmolar úr
læknaskýrslum:
- Að höfðu samræði við lækni féllst
hann á að koma sjálfviljugur inn.
- Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg
horfið.
- Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með
kjötbollum.
- Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall...
- Eftir það var hún í samkvæmi...
- Fékk vægan verk undir morgunsárið...
- Hún hefur þroskast eðlilega framan til...
- Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið
í sitt hvora áttina í byrjun desember.
- Húðin var rök og þurr.
- Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr...
- Móðir getur látið barnið sitja með því að setja fæturna í
hring...
- Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér
sjálf...
- Saga er fengin hjá uppgefnum ættingjum...
- Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt
undan henni hestur...
- Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar
mann sem heitir Kristmundur.
- Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt...
- Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í
Hafnarfirði...
- Við komu á spítalann var sjúklingur fljótlega skoðaður af
undirrituðum og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára karlmann
sem er mjög þrekvaxinn og vöðvastæltur...
- Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill...
- Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð...
- Við skoðun eru engar eitlastækkanir að gagni...
- Það sem fyllti mælinn var þvagleki...
- Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa...
- Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum
leið betur.
- Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt....
- Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann...
- Sjúklingur borðar reglulegt mataræði...
- Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð.
- Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.
- Sjúklingur er svo hress að hann gæti gengið langleiðina til
Akureyrar...
- Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niður úr.
- Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunmat og var kominn með
lystarstol í hádeginu.
- Sjúklingur fékk þá mjög langsótt kvef...
- Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið
lengur en í eitt ár.
- Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar
hann vaskar upp í sumarbústað - en er ráðlagt eftirlit ef verkirnir
koma fram við önnur tækifæri...
- Sjúklingur hefur átt við gott heilsufar að stríða...
- Sjúklingur hefur fremur óbærilega verki...
- Sjúklingur hefur formlegar hægðir...
- Sjúklingur hefur skilið eftir hvítu blóðkornin á öðrum
spítala.
- Sjúklingur hefur verið að þyngjast af asmanum sl.
sólarhring...
- Sjúklingur hefur verið mædd sl. fimm ár...
- Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að
hitta mig 1983.
- Sjúklingur lenti á parketgólfi og bar fyrir sig höndina með þeim
árangri að hún brotnaði...
- Sjúklingur hefur verið í vandræðum með gervifótinn en hann hefur
haft fjóra fætur frá því að hann lenti í slysinu, en þann síðasta
fékk hann í apríl sl.
- Sjúklingur lærði söngnám...
- Sjúklingur tekur engin lyf en magnyl þess á milli...
- Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera
niðurdreginn.
- Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til flugvélin hans varð
eldsneytislaus og hrapaði.
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|